Norðmaður vann tvo milljarða

EuroJackpot.
EuroJackpot.

Stálheppinn Norðmaður var með allar tölurnar réttar í EuroJackpot í kvöld og fær hann í sinn hlut rúma tvo milljarða króna.

Sjö hlutu annan vinning og fær hver um sig tæpar 52 milljónir króna. Sex miðanna voru keyptir í Þýskalandi og einn í Hollandi.

Átta fengu þriðja vinning, sem hljóðar upp á rúmar 8 milljónir króna. Miðarnir voru keyptir í Þýskalandi, Króatíu, Finnlandi og Noregi.

Enginn hér á landi var með allar fimm jókertölurnar réttar í réttri röð en einn var með fjórar réttar í réttri röð. Sá fær 100 þúsund krónur í vasann. Miðinn var keyptur í N1 í Stórahjalla í Kópavogi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert