Ók út af við Vífilsstaðavatn

mbl.is/Hjörtur

Skömmu fyrir klukkan fjögur í nótt barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um útafakstur bifreiðar við Elliðavatnsveg nærri Vífilsstaðavatni. 

Samkvæmt upplýsingum lögreglu reyndist par í annarlegu ástandi vera í bifreiðinni. Parið er grunað um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna og nytjastuld bifreiðar. 

Þau voru vistuð fyrir rannsókn máls í fangageymslu lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert