Sautján ára stöðvaður á 147 km/klst hraða

Frá Reykjanesbæ.
Frá Reykjanesbæ. mbl.is/Sigurður Bogi

Sautján ára ökumaður mældist á 147 km hraða í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Fimm til viðbótar voru kærðir fyrir hraðakstur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá embættinu.

Lögreglan tók einnig sex ökumenn úr umferð vegna gruns um að hafa ekið undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Þá voru skráningarnúmer fjarlægð af sjö bifreiðum sem voru ýmist óskoðaðar eða ótryggðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert