Sigurður í gullliði Dana

Sigurður Baldvinsson leggur lokahönd á verkið, sem var í anda …
Sigurður Baldvinsson leggur lokahönd á verkið, sem var í anda Ólympíuleikanna.

Sigurður Elvar Baldvinsson, bakara- og konditor-meistari, var í danska landsliðinu sem sigraði á Norðurlandamóti bakara, Nordic Bakery Cup, sem fram fór í Herning í Danmörku um liðna helgi.

Hann varð einnig hlutskarpastur í gerð skrautstykkja. Svíar urðu í 2. sæti í liðakeppninni, Norðmenn í því þriðja og lið Íslands hafnaði í fjórða og neðsta sæti.

„Keppendur Íslands stóðu sig alveg eins og hetjur, keppnin var mjög jöfn og mjótt á mununum,“ segir Sigurður. Hann bætir við að verðlaunin hafi mikla þýðingu fyrir hann. „Faglega séð er þetta mikill heiður og er ég að uppskera ávöxtinn af mikilli vinnu og mörgum tímum í bakaríinu. Persónulega hefur þetta kannski ennþá meiri þýðingu þar sem ég fékk heilablóðfall fyrir einu og hálfu ári og var frá vinnu í tvo mánuði. Gerðist reyndar viku eftir að ég varð aðstoðarþjálfari danska bakaralandsliðsins. Ég komst upp úr þeim erfiðleikum með hjálp fjölskyldu og vina en ekki síst landsliðsins sem stóð við bakið á mér allan tímann.“

Sjá viðtal við Sigurð Elvar í heild á baksíðu Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert