Sváfu frekar lítið næstu nótt

Lottóvinningurinn síðasta laugardag féll í skaut eldri hjóna sem keypt höfðu 10 raða Lottómiða með Jóker hjá 10-11 Fitjum í Reykjanesbæ. Vinningurinn var ekki af verri endanum eða 26 skattfrjálsar milljónir samkvæmt upplýsingum frá Getspá.

„Hjónin horfðu á útdráttinn í sjónvarpinu og trúðu ekki sínum eigin augum þegar tölurnar þeirra birtust hver á fætur annarri og þau með allar tölurnar réttar. Hjónin fóru strax inn á textavarpið til að fá staðfest að þau væru með allar tölur réttar og það var ekki fyrr en þau sáu fréttina inni á lotto.is að þau voru fullviss um að þau hefðu dottið í lukkupottinn. Þau sváfu frekar lítið næstu nótt fyrir spenningi en nú ætla þau að láta draum sinn rætast um að dveljast á suðrænum slóðum yfir dimmustu og köldustu vetrarmánuðina.“

Hjónin, sem brátt fara á eftirlaun, ætla einnig að leyfa uppkomnum börnum sínum að njóta vinningsins með sér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert