Stjórn Reykjavíkur Loftbrúar hefur samþykkt breytingar á áherslum og umfangi sjóðsins. Í stað smærri mánaðarlegra úthlutana í formi farmiða verður úthlutun sjóðsins nú ein á ári þar sem valin verða allt að fimm verkefni úr hópi umsækjenda, sem fá tveggja milljóna króna gjafabréf sem hægt verður að nota að vild í ferðir og aukafarangur með Icelandair.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.
Aðilar að Reykjavík Loftbrú eru Icelandair, Reykjavíkurborg, FÍH (Félag íslenskra hljómlistarmanna), FHF (Félag hljómplötuframleiðenda) og STEF (Samtök tónskálda og eigenda flutningsréttar).
„Með þeim breytingum sem nú hafa verið gerðar á sjóðnum er styrkur frá Reykjavík Loftbrú hrein búbót fyrir tónlistarfólk sem getur nýtt gjafabréfið til að kaupa flug og aukafarangur með Icelandair en breytingarnar á Reykjavík Loftbrú eru gerðar til að geta stutt enn betur við bakið á tónlistarfólki sem er í markvissri útrás með sína tónlist,“ segir í tilkynningunni.
Markmiðið með Reykjavík Loftbrú er að styðja við bakið á íslensku tónlistarfólki sem vill hasla sér völl á erlendri grundu og kynna um leið Reykjavík sem tónlistar- og menningarborg og spennandi viðkomustað ferðamanna.
Opið er fyrir umsóknir um styrki frá Reykjavík Loftbrú á vef Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar og er umsóknarfrestur til og með 17. apríl. Allt tónlistarfólk, óháð tónlistarstíl og stefnu, sem verður með tónleika erlendis á árunum 2018 og 2019 getur sótt um styrk úr sjóðnum.
Miðað er við að umsækjendur séu ekki á byrjunarreit, heldur séu komnir á legg, hafi gefið út efni með eigin verkum og/eða flutningi, séu með samstarfsaðila í utanumhaldi og framkvæmd tónleikahalds og geti lagt fram gögn um verkefni á erlendri grundu sem að mati fimm manna úthlutunarnefndar eru talin geta styrkt ímynd Reykjavíkur og Íslands alls sem uppsprettu framsækinnar menningar og öflugs tónlistarlífs.