Ungt par tekið með kókaín í Leifsstöð

Í botni taskanna reyndust vera 3,3 kíló af kókaíni. Myndin …
Í botni taskanna reyndust vera 3,3 kíló af kókaíni. Myndin er úr safni. mbl.is/Júlíus

Lögreglan á Suðurnesjum hefur að undanförnu haft til rannsóknar mál sem upp kom þegar ungt íslenskt par kom til landsins með tvær ferðatöskur sem í voru falin á fjórða kíló af kókaíni.

Parið var að koma frá Tenerife 10. mars síðastliðinn þegar lögregla handtók það í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eftir að tollverðir höfðu stöðvað för þess. Í botni beggja taskanna reyndust vera samtals 3,3 kíló af kókaíni, að því er lögreglan greinir frá í tilkynningu.

Stúlkan aðeins 17 ára gömul

Þar segir ennfremur, að karlmaðurinn sé 23 ára og stúlkan sautján ára.

Maðurinn játaði við skýrslutöku hjá lögreglu að hann hefði skipulagt innflutning efnanna, sem hann reyndi að smygla til landsins, án vitundar stúlkunnar. Þeim var báðum gert að sæta gæsluvarðhaldi, honum á Hólmsheiði en stúlkan var vistuð á Stuðlum sökum ungs aldurs.

Rannsókn málsins er á lokastigi að sögn lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert