Verkefnastjórn um málefni LÍN skipuð

mbl.is/Hjörtur

Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra hefur skipað verkefnastjórn um endurskoðun á lögum um Lánasjóð íslenskra námsmanna (LÍN). Formaður stjórnarinnar er Gunnar Ólafur Haraldsson, hagfræðingur og fyrrum forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands.

Fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu, að ghlutverk verkefnastjórnar sé að skoða íslenska námslánakerfið í heild sinni og gera tillögur að umbótum þess og þróun.

Meðal álitaefna sem verkefnastjórnin mun taka til skoðunar eru hvers konar nám skuli vera lánshæft, hvernig vöxtum og endurgreiðslu skuli háttað hjá sjóðnum og fjármögnun hans. Einnig hvort tilefni sé til að ívilna ákveðnum námsgreinum þegar kemur að endurgreiðslu lána, þá meðal annars með tilliti til búsetu.

Aðrir í verkefnastjórninni eru Agnes Guðjónsdóttir, lögfræðingur og varaformaður, Davíð Freyr Jónsson, frumkvöðull og framkvæmdastjóri og Hrafnhildur Ásta Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Lánasjóðs íslenskra námsmanna (LÍN), öll tilnefnd af mennta- og menningarmálaráðherra. Aldís Mjöll Geirsdóttir formaður Landssamtaka íslenskra stúdenta og Ragnar Auðun Árnason stjórnarmaður í LÍN, bæði tilnefnd af LÍS og Andri Gunnarsson, lögmaður, tilnefndur af fjármála- og efnahagsráðuneytinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert