Björguðu ketti í Reykjavíkurtjörn

Ferðamenn við Reykjavíkurtjörn.
Ferðamenn við Reykjavíkurtjörn. mbl.is/Golli

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út fyrr í kvöld til að bjarga ketti sem hafði komist af sjálfsdáðum út í hólma í Reykjavíkurtjörn.

Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu var stigi lagður út í hólmann og kettinum í framhaldinu komið í land.

Það var lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sem óskaði eftir aðstoð slökkviliðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert