Fjármálaráðherrar ræddu EES-samninginn

Fjármálaráðherra Noregs, Siv Jensen og Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra Íslands ræddu …
Fjármálaráðherra Noregs, Siv Jensen og Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra Íslands ræddu meðal annars Evrópumál á fundi sínum í Washington í dag. Ljósmynd/Aðsend

Fjármálaráðherra Noregs, Siv Jensen, segist sýna því fullan skilning að Ísland þurfi í sumum tilvikum að óska eftir aðlögun vegna regluverks Evrópusambandsins áður en það er tekið upp í EES-samninginn.

Þetta er meðal þess sem kom fram á fundi ráðherrans með Bjarna Benediktssyni, fjármálaráðherra Íslands, í Washington í dag.

Fundurinn átti sér stað í tengslum við setu fjármálaráðherranna á vorfundi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Í tilkynningu frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu kemur fram að ráðherrarnir ræddu meðal annars vinnu við upptöku á reglum ESB á fjármálamarkaði í EES-samninginn, en Ísland hefur haft uppi ákveðin sjónarmið í tengslum við mat á hæfi virkra eigenda í fjármálafyrirtækjum. „Stór fjárfesting í kerfislega mikilvægum fjármálafyrirtækjum á Íslandi er að mati íslenskra stjórnvalda auðveldari en í sambærilegum fyrirtækjum á EES-svæðinu, vegna smæðar þeirra íslensku,“ segir í tilkynningu.

Bjarni Benediktsson fundaði jafnframt vegna þessa máls með Valdis Dombrovskis, varaforseta framkvæmdastjórnar ESB. Þeir ræddu einnig þann árangur sem náðst hefur á Íslandi við losun fjármagnshafta og stöðu efnahagsmála.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert