Móðurmálskennsla fyrir Pólverja í FSu

Komið er til móts við erlenda nemendur í Fjölbrautarskóla Suðurlands.
Komið er til móts við erlenda nemendur í Fjölbrautarskóla Suðurlands. mbl.is/Hari

„Þau eru mörg búin að dvelja stutt hér á landi og vantar móðurmálskennslu. Við viljum gera nemendur betur hæfa til þess að aðlagast samfélaginu hér.“

Þetta segir Olga Lísa Garðarsdóttir, skólameistari FSu, í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Næsta haust verður pólskum nemendum í FSu boðið upp á móðurmálskennslu. Fram til þessa hafa pólskir nemendur fengið kennslu í íslensku fyrir útlendinga. Ekki er vitað til þess að boðið hafi verið upp á samskonar kennslu í framhaldsskóla hér fyrr. Sífellt fleiri erlendir nemendur sækja í skólann samfara fjölgun starfa í ferðaþjónustu á svæðinu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert