Launaliðurinn til sæmræmis við launalið annarra samninga

Oddur S. Jakobsson, hagfræðingur KÍ, Guðbjörn Björgólfsson, Þorbjörn Rúnarsson, Sigrún …
Oddur S. Jakobsson, hagfræðingur KÍ, Guðbjörn Björgólfsson, Þorbjörn Rúnarsson, Sigrún Lilja Guðbjörnsdóttir, Guðríður Arnardóttir, formaður FF, Elna Katrín Jónsdóttir, Snjólaug Elín Bjarnadóttir, formaður FS, Sólveig Ebba Ólafsdóttir og Brynjólfur Eyjólfsson. Ljósmynd/Aðsend

Launaliður kjarasamnings við ríkið sem Félag framhaldsskólakennara og Félag stjórnenda í framhaldsskólum skrifuðu undir í gærkvöldi, er til samræmis við launalið þeirra kjarasamninga sem stéttarfélög opinberra starfsmanna hafa skrifað undir síðustu mánuði. Samningstíminn er stuttur eða út mars 2019. Skrifað var undir samninginn með fyrirvara um samþykki félagsmanna. 

Í viðauka við samkomulagið er fjallað um ferli breytinga á vinnumati.

Fram kemur í tilkynningu frá Kennarasambandi Íslands, að samhliða kjarasamningi liggi fyrir samkomulag við mennta- og menningarmálaráðherra um að 350 til 400 milljónum skuli varið til endurmats á vinnumati þeirra áfanga sem falla undir meginbreytingu á námstíma til stúdentsprófs sbr. dóm félagsdóms frá 22. september 2016. Samkomulagið verður undirritað af mennta- og menningarmálaráðherra og formanni samninganefndar KÍ/framhaldsskóla á næstu dögum.

Samningurinn verður kynntur félagsmönnum FF og FS á næstu dögum og hefur formaður FF þegar sent bréf á félagsmenn og farið nánar yfir sérstök atriði samningsins.

Frá áramótum hefur Elna Katrín Jónsdóttir unnið með viðræðunefnd félagsins. Brynjólfur Eyjólfsson, kennari við MA, hefur jafnframt setið þessa samningalotu þótt hann hafi hætt störfum á liðnu ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert