Markmiðið er að slökkviliðsmenn þekki vel til staðhátta

Gildi samstarfsins sannaðist berlega þegar upp kom eldur í Hellisheiðarvirkjun …
Gildi samstarfsins sannaðist berlega þegar upp kom eldur í Hellisheiðarvirkjun í janúar síðastliðnum. mbl.is/Hanna

Orka náttúrunnar og Brunavarnir Árnessýslu hafa endurnýjað samstarfssamning sinn um reglubundnar brunavarnaæfingar í virkjunum ON á Hellisheiði og Nesjavöllum.

Mikilvægi samstarfsins sýndi sig vel þegar upp kom eldur í Hellisheiðarvirkjun í vetur og samningurinn eflir líka almennar brunavarnir í nærsamfélagi virkjananna, að því er segir í tilkynningu.

Samingurinn kveður á um að minnsta kosti tvær sameiginlegar æfingar í hvorri virkjun á ári. Markmiðið er að slökkviliðsmenn þekki vel til staðhátta og húsakosts virkjananna og virkjanafólk til vinnubragða slökkviliðsmanna og þeirra búnaðar.

Þá kemur starfsfólk Brunavarna Árnessýslu einnig að forvörnum meðal annars með fræðslu fyrir muni fræða starfsfólk ON um brunavarnir.

Það voru þeir Pétur Pétursson slökkviliðsstjóri og Trausti Björgvinsson, forstöðumaður …
Það voru þeir Pétur Pétursson slökkviliðsstjóri og Trausti Björgvinsson, forstöðumaður virkjanareksturs ON, sem skrifuðu undir samstarfssamninginn í Hellisheiðarvirkjun í morgun. Ljósmynd/ON
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert