Þrjár bifreiðar skullu saman

mbl.is/Hjörtur

Þriggja bíla árekstur varð á gatnamótum Grensásvegar og Miklubrautar í Reykjavík upp úr klukkan fimm.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins liggja frekari upplýsingar ekki fyrir en sjúkrabílar eru á leiðinni á staðinn.

Uppfært 17:30: Tveir voru fluttir á slysadeild til skoðunar en meiðsl þeirra voru ekki talin alvarleg. Hreinsa þurfti upp eftir slysið en ekki var um harðan árekstur að ræða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert