Hollenskur lögmaður ráðleggur Sindra

Sindri Þór á Keflavíkurflugvelli skömmu fyrir flugið til Svíþjóðar.
Sindri Þór á Keflavíkurflugvelli skömmu fyrir flugið til Svíþjóðar. Ljósmynd/Lögreglan á Suðurnesjum

Þorgils Þorgilsson, verjandi Sindra Þórs Stefánssonar, sem nú situr í gæsluvarðhaldi í Amsterdam í Hollandi, ræddi stuttlega við hann í morgun. Þorgils hefur hins vegar eftirlátið hollenskum lögmanni Sindra ytra það að ráðleggja honum lögfræðilega varðandi hollensk lög. Sjálfur segist hann vera að bíða eftir frekari upplýsingum um málið að utan og frá íslenskum yfirvöldum, en fram hefur komið að farið verið fram á framsal á Sindra til landsins í þessari viku.

Sindri var í morgun úr­sk­urðaður í 19 daga gæslu­v­arðhald af hol­lensk­um dóm­ara í Héraðsdómi Amster­dam, en um er að ræða gæsluvarðhald meðan á framsalsferli stendur. Þetta staðfest­i Fatima el Gu­er­iri, fjöl­miðlafull­trúi héraðsdóm­stóls­ins, í sam­tali við mbl.is. Hún sagðist ekki geta veitt frek­ari upp­lýs­ing­ar um málsmeðferð í máli Sindra að svo stöddu.

Sindri situr nú í gæsluvarðhaldi í Amsterdam.
Sindri situr nú í gæsluvarðhaldi í Amsterdam.

Sindri mun ekki hafa tekið formlega afstöðu til framsals hjá dómara í morgun, enda þarf fyrst að liggja formleg framsalsbeiðni frá íslenska ríkinu. Þorgils útilokar þó ekki að Sindri hafi verið spurður út í afstöðu til framsals en það hafi þá ekki verið formlegs eðlis.

Þarf að samþykkja beiðnina með skriflegri yfirlýsingu

Ferlið er þannig að íslenska ríkið þarf að senda hollenskum yfirvöldum formlega framsalsbeiðni þar sem farið er fram á að Sindri verði framseldur til Íslands. Í kjölfarið yrði hann spurður út í afstöðu til beiðninnar. Samþykki hann beiðnina með skriflegri yfirlýsingu til saksóknara í Hollandi yrði hann sendur heim og gæti það ferli tekið innan við tíu daga.

Ef Sindri samþykkir ekki framsal þá þurfa hollensk stjórnvöld og dómstólar að fara yfir það hvort það eigi að framselja hann, en slíkt tekur mun lengri tíma, jafnvel einhverja mánuði.

Sindri strauk úr fangelsinu á Sogni aðfararnótt þriðjudags í síðustu viku og komst með flugi til Svíþjóðar áður en nokkur hafði gert sér grein fyrir því að hann væri horfinn. Sindri virðist svo hafa ferðast frá Svíþjóðar til Amsterdam í Hollandi þar sem hann var handtekinn síðastliðið sunnudagskvöld eftir ábendingu frá vegfaranda.

Veg­far­and­inn hafði tekið mynd af Sindra Þór með sím­an­um sín­um í miðborg Amster­dam og síðan farið á næstu lög­reglu­stöð, sýnt lög­regl­unni mynd­ina og sagt Sindra Þór vera eft­ir­lýst­an á Íslandi. Þá var í gildi alþjóðleg handtökuskipun á hendur honum.

Sindri hef­ur setið í gæslu­v­arðhaldi síðan 2. fe­brú­ar síðastliðinn vegna gruns um aðild að stór­felld­um þjófnaði á tölvu­búnaði úr gagna­veri. Alls var um 600 tölv­um stolið og talið er að verðmæti þeirra nemi um 200 millj­ón­um króna. Er um að ræða stærsta þjófnaðar­mál Íslands­sög­unn­ar. Hann hafði verið á Sogni í tíu daga þegar hann strauk, en um er að ræða opið úrræði fyrir fanga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert