Ræddu eflingu norræna velferðarkerfisins

Leiðtogar norrænu íhaldsflokkanna í fundarhléi í Stokkhólmi. Petteri Orpo, Ulf …
Leiðtogar norrænu íhaldsflokkanna í fundarhléi í Stokkhólmi. Petteri Orpo, Ulf Kristersson, Bjarni, Erna Solberg og Søren Pape Poulsen. Ljósmynd/Aðsend

Leiðtogar íhaldsflokka á Norðurlöndunum komu saman til fundar í Stokkhólmi í dag. Efling norræna velferðarkerfisins, endurbætur á norrænu samstarfi og efling þess, víðtækara og aukið samstarf við Eystrasaltsríkin, áhrif Brexit á samskipti Norðurlanda og Bretlands, auk helstu ógna sem heimsbyggðin stendur frammi fyrir, var meðal þess sem rætt var á leiðtogafundinum. 

Bjarni Benediktsson, formanns Sjálfstæðisflokksins, lagði til að efnt yrði til sameiginlegrar ráðstefnu um þróun norræna velferðarkerfisins. „Til að viðhalda sterkri stöðu norræna velferðakerfisins og efla það enn frekar, þannig að engir verði útundan á breyttum tímum, er mikilvægt fyrir löndin að læra af reynslu hvers annars, meðal annars um það hvernig mæta beri þeim nýju áskorunum sem löndin standa frammi fyrir,“ er haft eftir Bjarna í tilkynningu. 

Að hans mati eru Norðurlöndin mikið til að fást við sömu vandamál, en á sama tíma svipuð tækifæri. „Þó í mismiklum mæli, og getum margt lært af frændum okkar og nágrönnum. Þar fyrir utan er mikilvægt fyrir ríki Norðurlanda að kanna hvort þau geti í sameiningu náð aukinni hagkvæmni í innkaupum.“

Auk Bjarna voru formenn hinna norrænu íhaldsflokkanna viðstaddir fundinn, þau Erna Solberg forsætisráðherra Noregs (Høyre), Søren Pape Poulsen dómsmálaráðherra Danmerkur (Det Konservative Folkeparti), Petteri Orpo fjármálaráðherra Finnlands (Kokoomus) og Ulf Kristersson frá Svíþjóð (Moderaterna).

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert