Bergur Ebbi og Ólafur Stefánsson í stjórn UN Women

Stjórn UN Women á Íslandi. Á myndina vantar Magnús Orra …
Stjórn UN Women á Íslandi. Á myndina vantar Magnús Orra Schram og Þóreyju Vilhjálmsdóttur.

Bergur Ebbi Benediktsson, rithöfundur, ljóðskáld og ritgerðasmiður, og Ólafur Stefánsson, „hjartisti“ og frumkvöðull, voru kjörnir nýir inn í stjórn UN Women á Íslandi í gær.

Elín Hrefna Ólafsdóttir lögfræðingur og Karen Áslaug Vignisdóttir hagfræðingur gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Auk Bergs Ebba og Ólafs sitja sem fyrr Fanney Karlsdóttir forstöðukona, Kristín Ögmundsdóttir framkvæmdastjóri, Magnús Orri Schram, ráðgjafi, Soffía Sigurgeirsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur, Örn Úlfar Sævarsson, texta-og hugmyndasmiður, og Þórey Vilhjálmsdóttir ráðgjafi. Formaður landsnefndarinnar er Arna Grímsdóttir, lögfræðingur og framkvæmdastjóri. Íslenska landsnefndin er fyrsta landsnefnd stofnunarinnar sem skipuð er til jafns konum og körlum.

„Umsvif íslenskrar landsnefndar UN Women hafa aukist mikið undanfarin ár og jukust framlög landsnefndarinnar til verkefna UN Women um 40% á milli áranna 2016 og 2017. Framlag landsnefndarinnar til alþjóðlegra verkefna árið 2017 var 94 m.kr., bæði söfnunartekjur sem og tekjur af söluvarningi jukust verulega en 83% aukning var á tekjum af söluvarningi frá fyrra ári.

Árið 2017 sendi íslensk landsnefnd UN Women annað árið í röð hæsta framlag til verkefna UN Women, allra fimmtán landsnefnda og þá óháð höfðatölu,“ segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert