Langflestir vilja fella strompinn

1.095 íbúar Akraness eru fylgjandi því að strompurinn verði felldur.
1.095 íbúar Akraness eru fylgjandi því að strompurinn verði felldur. mbl.is/Kristinn Magnússon

Alls vildu 94,25 prósent þeirra sem tóku þátt í kosningu um framtíð stromps Sementsverksmiðju ríkisins láta fella hann. 

Samtals voru 1.095 íbúar fylgjandi því að strompurinn verði felldur en 63 voru því mótfallnir, eða 5,75 prósent.

Opnað var fyrir kosninguna í íbúagátt Akranesskaupstaðar 18. apríl. Um var að ræða ráðgefandi skoðanakönnun meðal íbúa Akraness og lauk kosningu á miðnætti 24. apríl.

Niðurstaðan var lögð fram í bæjarráði fyrr í dag og lagði það til að niðurstaðan yrði höfð til hliðsjónar við frekari skipulagningu á áframhaldandi uppbyggingu á Sementsreitnum. Bæjarstjóra var falið að fylgja málinu eftir til skipulagsfulltrúa bæjarins, að því er segir í tilkynningu.

„Við erum mjög ánægð með þátttöku íbúa í þessari kosningu og með niðurstöðu hennar. Ljóst er að íbúar vilja verja fjármunum bæjarins í aðra hluti en viðhald á sementsstrompi og fögnum við þessu aukna lýðræði í stórum verkefnum sem bærinn er með, þetta verður aðeins byrjunin að því. Bærinn mun vitaskuld halda í þá atvinnusögu sem Sementsverksmiðjan kom með hingað til Akraness og útbúa minnisvarða um hana. Næstu skref hjá okkur er að klára skipulags svæðisins til undirbúnings niðurrifs sementsstrompsins,“ segir Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri á Akranesi, í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert