Lítil og þétt lægð á norðurleið

Það viðrar ágætlega fyrir útivist á morgun.
Það viðrar ágætlega fyrir útivist á morgun. mbl.is/​Hari

Núna í morgunsárið er lítil lægð þétt upp við Vesturland sem mjakar sér norður í dag og er útlit fyrir skúri eða slydduél sunnan- og suðvestanlands en él þegar komið er norður á Vestfirði.

Á norðausturhluta landsins stefnir hins vegar í úrkomulítið veður í dag. Á morgun er spáð ágætisútivistarveðri, hægum vindi og stöku skúrum eða éljum en úrkomulitlu um landið vestanvert þegar líður á daginn. Á sunnudag snýst síðan í stífa suðlæga átt með rigningu eða slyddu, en áfram þurrt norðaustan til, að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands.

Veðurspá fyrir næstu daga

Vestlæg eða breytileg átt 3-10 m/s með morgninum og víða skúrir eða slydduél, jafnvel él NV-til, en úrkomulítið NA-lands. Bætir í vind á Vestfjörðum í kvöld. 
Norðlæg eða breytileg átt 3-8 m/s á morgun og víða stöku skúrir eða él, en léttir til V-lands þegar líður á daginn. Hiti 0 til 8 stig að deginum, hlýjast syðst, en víða næturfrost, einkum NA-til.

Á laugardag:

Norðlæg eða breytileg átt 3-8 m/s og víða stöku skúrir eða él, en léttir til V-lands þegar líður á daginn. Hiti 0 til 8 stig að deginum, hlýjast S-til. 

Á sunnudag:
Ákveðin suðlæg átt með rigningu eða slyddu, en þurrt NA-til. Hlýnar heldur, einkum fyrir norðan. 

Á mánudag:
Minnkandi suðlæg átt. Rigning S-lands og skúrir um landið V-vert, jafnvel él þar um kvöldið, annars þurrt. Hiti 1 til 7 stig, hlýjast NA-til. 

Á þriðjudag:
Norðvestlæg og vestlæg átt með skúrum eða éljum, einkum NV-til, en úrkomulítið um landið A-vert. Kólnar heldur. 

Á miðvikudag og fimmtudag:
Útlit fyrir suðvestlæga eða breytilega átt með stöku skúrum eða éljum S- og V-lands, annars víða bjart í veðri. Hiti 0 til 5 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert