Leitað að mönnum á Þingvallavatni

mbl.is/Ófeigur

Leit stendur yfir að tveimur einstaklingum sem eru  í vanda staddir á Þingvallavatni.

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hefur sent þrjá kafara á staðinn.

Björgunarsveitir eru komnar á svæðið en einhverjar sveitir voru kallaðar frá leitinni við Ölfusá en þar fór maður ofan í í nótt. 

Að sögn Landshelgisgæslunnar stendur ekki til að senda þyrlu á vettvang. 

Uppfært KL. 12:54:

Búið er að ná mönnunum tveimur upp úr úr vatninu og eru þeir á leiðinni í sjúkrabíl á Landspítalann, að sögn slökkviliðsins. 

Slökkviliðið sendi þrjá kafara á staðinn en mennirnir fundust ekki með þeirra hjálp.

Engar upplýsingar fengust um líðan mannanna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert