Undirritað var samkomulag um stofnframlag vegna kaupa á fjórum íbúðum í Kópavogi í dag. Kópavogsbær mun sjá um úthlutanir íbúðanna af biðlista eftir leiguíbúðum hjá Brynju – Hússjóði ÖBÍ og Kópavogsbæ.
Í tilkynningu frá Kópavogsbæ segir að báðir aðilar hafi lýst yfir áhuga á frekara samstarfi. Með íbúðunum eru félagsleg búsetuúrræði alls 471 í bænum, 433 íbúðir en önnur úrræði 38.