Óska eftir samstarfi vegna byggingu 500 íbúða

Hér má sjá reitina sem um ræðir.
Hér má sjá reitina sem um ræðir.

Reykjavíkurborg óskar eftir samstarfsaðilum til að byggja hagkvæmt húsnæði í Reykjavík á sjö þróunarreitum víðs vegar um borgina. Mögulegt verður að byggja um 500 íbúðir á þessum svæðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Veðurstofufreitur.
Veðurstofufreitur.

Þróunarsvæðin sem um ræðir eru í Úlfarsárdal, á Kjalarnesi, í Gufunesi, í Bryggjuhverfi við Elliðaárvog, við Stýrimannaskólann, á Veðurstofureit og í Skerjafirði. Deiliskipulag liggur fyrir í Úlfarsárdal, en á öðrum svæðum er samstarfsaðilum boðið að koma inn í þróunar- og deiliskipulagsvinnuna.

Úlfarsárdalur.
Úlfarsárdalur.

Í vetur auglýsti Reykjavíkurborg eftir hugmyndum til að auka framboð af hagkvæmu húsnæði fyrir meðal annars ungt fólk og fyrstu kaupendur. Sextíu og átta aðilar brugðust við þessari hvatningu til nýsköpunar og framþróunar í uppbyggingu íbúða og sendu inn erindi. Unnið var úr þeim og valdar hugmyndir kynntar á málþingi í Ráðhúsi Reykjavíkur. Nú er komið að næsta áfanga þessarar vegferðar og er því nú auglýst eftir samstarfsaðilum á nýjan leik.

Stýrimannaskólinn.
Stýrimannaskólinn.

Umsóknarfrestur er til og með 20. júní og geta lögaðilar lagt inn umsókn fyrir fleiri en einn þróunarreit. Umsóknir verða metnar á grundvelli matslíkans og fá aðilar sem voru með tillögu á fyrsta stigi hugmyndaleitar  njóta þess í matslíkani. Að deiliskipulagvinnu lokinni verður hægt að úthluta lóðum og er gert ráð fyrir að þær verði á föstu verði, 45.000 kr. á hvern fermetra ofanjarðar auk gatnagerðargjalda.  Settar verða kvaðir á sölu byggingarréttar til að tryggja að þau kjör sem nú eru boðin gagnist síðari kaupendum og leigjendum. Reglur og kvaðir verða útfærðar í úthlutunarbréfi og þinglýst eftir atvikum.

Skerjafjörður.
Skerjafjörður.



Kjalarnes.
Kjalarnes.
Gufunes.
Gufunes.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert