Menning sem lítur á lyf sem lausn

Frá afhendingu skýrslunnar í dag.
Frá afhendingu skýrslunnar í dag. Ljósmynd/Velferðarráðuneytið

Starfshópur, sem falið var að gera tillögur um aðgerðir til að stemma stigu við mis- og ofnotkun geð- og verkjalyfja, skilaði heilbrigðisráðherra í dag skýrslu með tillögum sínum. Fjallað er í skýrslunni um misnotkun lyfseðilsskyldra lyfja sem víða er vaxandi vandamál. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá velferðarráðuneytinu.

Helst sé þar um að ræða svefnlyf, róandi og kvíðastillandi lyf, ópíóíð, sterk verkjalyf og lyf notuð sem viðhaldsmeðferð við ópíóíðafíkn og örvandi lyf gegn ADHD. „Þetta eru þeir lyfjaflokkar þar sem Íslendingar skera sig úr varðandi mikla notkun, auk þunglyndislyfja. Í skýrslu EMCDDA kemur fram að stóran hluta mikillar misnotkunar framangreindra lyfja megi rekja til slæmra ávísunarvenja lækna,“ segir í tilkynningunni.

„Starfshópurinn segir í skýrslu sinni til ráðherra að ástæður mikillar lyfjanotkunar hér á landi séu margþættar. Skapast hafi væntingar og menning sem líti á lyf sem lausn margra vandamála og samhliða miklu magni af ávanabindandi lyfjum í umferð aukist hætta á of- og misnotkun. Tillögur hópsins miðast fyrst og fremst að því að takmarka magn ávanabindandi lyfja í umferð og styðja góðar ávísunarvenjur lækna en einnig að því að efla eftirlit. Jafnframt segir hópurinn mikilvægt að almenningur sé upplýstur um þá hættu sem stafar af þessum lyfjum ef þau eru ekki rétt notuð.“

Tillögur starfshópsins eru í níu liðum: 

  • takmarka aðgang að ávanabindandi lyfjum,
  • auka fræðslu bæði hjá fagstéttum og almenningi,
  • herða eftirlit með ávísanavenjum lækna,
  • gera kröfur um bætta greiningu á ADHD
  • bæta aðgang að öðrum úrræðum en lyfjum við meðferð á ADHD, svefnvanda, kvíðaröskunum og langvinnum verkjum.

Hópurinn mælir auk þess með því að gerð verði krafa um teymisnálgun við greiningu, meðferð og eftirfylgni sjúkdóma sem krefjast meðferðar með ávanabindandi lyfjum. „Einnig telur starfshópurinn mikilvægt að innleiðing geðheilbrigðisáætlunar, með tilkomu geðheilsuteyma sem starfa í nánu sambandi við heilsugæsluna, tefjist ekki og að meðferð við fíknsjúkdómum og afleiðingum þeirra verði efld. Þá mælir hópurinn með því að lyfjanefnd Landspítalans verði styrkt og stofnuð lyfjanefnd innan heilsugæslunnar sem hafi það hlutverk að stuðla að góðum ávísunarvenjum lækna.“

Formaður starfshópsins var Birgir Jakobsson, fyrrverandi landlæknir og nú aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra. Aðrir fulltrúar voru; Aðalsteinn Jens Loftsson, lyfjafræðingur hjá Lyfju, Áslaug Einarsdóttir, settur skrifstofustjóri í velferðarráðuneytinu, Einar Magnússon, lyfjamálastjóri í velferðarráðuneytinu, Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar, Sigurður Örn Hektorsson, yfirlæknir fíknigeðdeildar Landspítala (LSH), Valgerður Rúnarsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga SÁÁ, Þröstur Emilsson, framkvæmdastjóri ADHD-samtakanna og Þórgunnur Ársælsdóttir yfirlæknir, formaður Geðlæknafélags Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert