Bilun í gagnagrunni Veðurstofu Íslands veldur því að spá gærdagsins birtist enn sem nýjasta spáin á vefnum vedur.is.
Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni er það þó eingöngu textaspáin sem er óuppfærð. Rétt kortaspá sem birtist á vefnum í morgun er í fullu gildi.
Verið er að vinna að lagfæringu og er gert ráð fyrir að vefurinn verði kominn í rétt horf innan skamms.