Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir bifreið sem stolið var frá Blesugróf fyrr í dag, 26. maí, rétt eftir hádegi. Um er að ræða dökkgráan Toyota Aygo, árgerð 2007, skráningarnúmer MU-513. Lyklum að bifreiðinni var stolið og bifreiðin tekin í kjölfarið.
Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að bifreiðin er ljóslaus öðrum megin að framan, með tjón á vinstra framhorni og ljóskerið brotið. Einnig má sjá skemmdir á sílsalista, neðan ökumannshurðar.
Sjái fólk bifreiðina, kyrrstæða eða á ferð, er það beðið um að hringja strax í 112.