Bifreið skemmd fyrir utan kosningaskrifstofu

Ljósmynd/Lögreglan á Vesturlandi

Skemmdarverk var framið á jeppabifreið sem lagt hafði verið fyrir utan kosningaskrifstofu Sjálfstæðisflokksins við Kirkjubraut á Akranesi.

Eigandi bifreiðarinnar hugðist sækja hana í dag og reyndist þá afturrúða hennar brotin. Bjórflösku harði verið kastað inn um rúðuna.

Bifreiðin hafði staðið fyrir utan kosningaskrifstofuna frá því um miðnætti í gær. Eigandinn, kona á besta aldri samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Vesturlandi, er ekki tryggður fyrir tjóninu og óskar lögreglan eftir upplýsingum um það hver kunni að hafa verið á ferðinni og skorar á þann sem olli tjóninu að gefa sig fram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert