Kastaði sér í höfnina

mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Mikill erill var hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins í gærkvöldi og nótt en meðal annars kviknaði í á tveimur stöðum og maður kastaði sér í sjóinn við Miðbakka í nótt.

Að sögn varðstjóra í slökkviliðinu barst tilkynning um að maður hefði kastað sér í sjóinn um tvö í nótt en þegar slökkvilið og lögregla komu á vettvang hafði maðurinn komið sér á þurrt land. Ekki er vitað hvað honum gekk til en betur fór en á horfðist.

Um svipað leyti var tilkynnt um eld í fjölbýlishúsi við Eyjabakka en nágranna tókst að slökkva eldinn áður en slökkviliðið kom á vettvang.

Jafnframt var töluvert um sjúkraflutninga í gærkvöldi og í nótt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert