Fengu lýðveldishátíðarköku í Vatnaskógi

Ljósmynd/Aðsend

Um eitt hundrað drengir úr sumarbúðunum í Vatnaskógi fengu lýðveldishátíðarköku í dag, enn í gleðivímu eftir leik Íslands og Argentínu í gær.

Á meðfylgjandi ljósmynd sem Ársæll Aðalbergsson, forstöðumaður í Vatnaskógi sendi mbl.is, má sjá stolta bakara standa yfir afrakstri dagsins. 

Eins og sjá má er kakan undir sterkum áhrifum frá HM í Rússlandi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert