Sleppt að loknum yfirheyrslum

Frá Akureyri.
Frá Akureyri. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Mennirnir tveir sem voru yfirheyrðir í dag, grunaðir um að hafa fótbrotið karlmann, var sleppt úr haldi seinnipartinn að loknum yfirheyrslum.

Lögreglan á Norðurlandi eystra segist vera búin að ná ágætlega utan um málið en gat ekki veitt upplýsingar um hvað mönnunum gekk til.

Einhverjir urðu vitni að árásinni og á lögreglan eftir að taka skýrslu af sumum þeirra.

Málið er í höndum rannsóknardeildar lögreglunnar.

Árásin átti sér stað við Hafnarstræti á Akureyri í nótt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert