Vilja bæta starfshætti Eystrasaltsráðsins

Fundi utanríkisráðherra Eystrasaltsráðsríkjanna lauk í Stokkhólmi í dag.
Fundi utanríkisráðherra Eystrasaltsráðsríkjanna lauk í Stokkhólmi í dag. Ljósmynd/Utanríkisráðuneytið

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra lagði áherslu á mikilvægi svæðisbundinnar samvinnu og frjálslynd og lýðræðisleg gildi á utanríkisráðherrafundi Eystrasaltsráðsins, sem haldinn var í Stokkhólmi í dag.

Norðurlöndin, Eystrasaltsríkin, Pólland, Þýskaland og Rússland eiga sæti í Eystrasaltsráðinu, auk Evrópusambandsins.

Í tilkynningu á vef utanríkisráðuneytisins kemur fram að Guðlaugur Þór minntist einnig stofnunar Eystrasaltsráðsins fyrir rúmum aldarfjórðungi í ræðu sinni. „Ferskir vindar og háleitar vonir einkenndu þessa tíma og við getum enn verið vongóð og unnið að velsæld og framförum í okkar heimshluta. Árangursrík samvinna, líkt og innan Eystrasaltsráðsins, hefur hvað eftir annað sannað gildi sitt,“ sagði Guðlaugur Þór.

Þá minntist hann einnig 25 ára afmælisfundar Eystrasaltsráðsins, sem haldinn var í Reykjavík á síðasta ári í formennsku Íslands og var fyrsti ráðherrafundur ráðsins eftir að átök í Úkraínu brutust út fyrir hartnær fimm árum. „Þar tókst okkur að endurvekja hið pólitíska samband á ráðherrastigi og eiga hreinskiptið og nauðsynlegt samtal,“ sagði Guðlaugur Þór enn fremur.

Á fundinum samþykktu utanríkisráðherrar Eystrasaltsráðsins ráðherrayfirlýsingu þar sem meðal annars er vísað til vinnu sérfræðingahóps sem skilað hefur tillögum sínum um bætta starfshætti Eystrasaltsráðsins til framtíðar. Þá tók Lettland formlega við formennsku í Eystrasaltsráðinu af Svíþjóð og mun leiða starfið næsta árið.

Á morgun sækir utanríkisráðherra fund utanríkisráðherra Norðurlanda, Eystrasaltsríkja og svonefndra Visegrad-ríkja, þ.e. Póllands, Ungverjalands, Tékklands og Slóvakíu. Sá fundur fer einnig fram í Stokkhólmi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert