100 milljónum úthlutað úr Jafnréttissjóði Íslands

Frá úthlutun úr Jafnréttissjóði Íslands í dag. Alls hlutu 28 …
Frá úthlutun úr Jafnréttissjóði Íslands í dag. Alls hlutu 28 umsækjendur styrk til verkefna og rannsókna sem er ætlað að efla kynjajafnrétti í íslensku samfélagi og á alþjóðavísu. Ljósmynd/Velferðarráðuneytið

Styrkjum úr Jafnréttissjóði Íslands var úthlutað við hátíðlega athöfn á Hótel Borg í dag. Að þessu sinni hlutu 28 umsækjendur styrk til verkefna og rannsókna sem er ætlað að efla kynjajafnrétti í íslensku samfélagi og á alþjóðavísu.

Fram kemur í tilkynningu að „Börn á tímum kynlífsvæðingar og stafrænnar tækni: Rannsóknir og aðgerðir“, verkefni Önnudísar Grétu Rúdólfsdóttur, hlaut hæsta styrkinn, samtals 10 milljónir króna. Næsthæsta styrkinn, níu milljónir króna, hlaut Arnhildur Gréta Ólafsdóttir fyrir gerð heimildarmyndarinnar „Full Steam Ahead“. Alls var tæpum 100 milljónum úthlutað úr sjóðnum.

Við athöfnina fluttu ávörp þau Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra.

Jafnréttissjóður Íslands var stofnaður 19. júní 2015 með samþykki þingsályktunar 13/144 í tilefni af 100 ára afmælis kosningaréttar íslenskra kvenna. Megintilgangur sjóðsins er að fjármagna eða styrkja verkefni og rannsóknir sem miða að því að efla jafnrétti kynjanna í íslensku samfélagi og á alþjóðavísu. Jafnréttissjóður Íslands nýtur framlaga af fjárlögum í fimm ár, 100 milljónir króna á ári, frá ársbyrjun 2016 til ársloka 2020.

Í ár bárust alls 85 umsóknir og var heildarfjárhæðin sem sótt var um rúmar 520 milljónir króna. Að þessu sinni hlutu 28 umsækjendur styrk til verkefna og rannsókna sem hafa að markmiði að efla kynjajafnrétti í samfélaginu.

Hér má sjá lista yfir styrkþega með upplýsingum um verkefni þeirra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert