Gylfi ekki áfram forseti ASÍ

Gylfi Arnbjörnsson.
Gylfi Arnbjörnsson. mbl.is/Hanna

Gylfi Arnbjörnsson mun ekki gefa kost á sér til endurkjörs sem forseti Alþýðusambands Íslands á 43. þingi ASÍ sem haldið verður í október. Þetta tilkynnti hann á miðstjórnarfundi sambandsins í dag.

Gylfi segir ákvörðunina ekki hafa verið einfalda en er sannfærður um að hún sé rétt, að því er segir í fréttatilkynningu frá ASÍ sem send var út eftir fundinn sem lauk nú síðdegis.

„Ég tók við sem forseti ASÍ þremur vikum eftir hrun og það var gríðarleg áskorun sem beið okkar sem vorum í forystu á vinnumarkaðinum á þeim tíma. Nú 10 árum síðar erum við komin fyrir vind og vel það,“ sagði Gylfi í yfirlýsingu sinni á fundinum.

Hann sagði að þrátt fyrir kaupmáttaraukningu síðustu þriggja ára, lítils atvinnuleysis, lágrar verðbólgu og sögulegs lágmarks vaxta sem skiptu launafólk miklu máli hefðu deilur innan verkalýðshreyfingarinnar harðnað. „Í þeim deilum virðist því miður sem persóna mín, í stað skoðana minna, sé orðin aðalatriði og þá á kostnað málefnalegrar umræðu.“

„ASÍ er mun stærra en nokkur einstaklingur, en ég viðurkenni að það er erfitt og lýjandi að eiga í átökum við félaga sína. Ég hef ávalt verið reiðubúinn til að berjast með félögum mínum og fyrir þá, en að berjast við þá gefur mér ekkert og skilar heldur engu fyrir hreyfinguna.“

Gylfi sagðist vona að áhersla ASÍ og aðildarfélaga yrði áfram lögð á að tryggja stöðugleika og langtímaárangur í kjarabaráttunni. „Ef brotthvarf mitt getur orðið til þess að auka líkurnar á að áfram verði haldið á svipuðum nótum ber mér að íhuga stöðu mína og hlutverk. Það hef ég nú gert og niðurstaða mín er sú að ég mun ekki gefa kost á mér sem forseti ASÍ á þinginu okkar í haust.“

Gylfi hefur verið forseti ASÍ í tíu ár og sagðist hann taka ákvörðunina í þakklæti og mikilli auðmýkt. „Ég vona sannarlega að hreyfingin nái vopnum sínum og sameinist í störfum sínum fyrir launafólk á Íslandi í komandi kjarasamningum. Verkalýðshreyfingin er nefnilega svo miklu öflugri þegar allir róa í sömu átt.“

Fréttin hefur verið uppfærð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert