Lýst eftir karlmanni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir 24 ára karlmanni. Síðast er vitað um ferðir hans í Reykjavík um síðustu helgi.

Maðurinn, sem glímir við veikindi, er 170 sentimetrar á hæð, grannvaxinn og með ljóst, stutt hár. Talið er að hann sé klæddur í svarta hettupeysu, svartar íþróttabuxur og svarta Adidas-skó með hvítum botni.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir hans, eða vita hvar hann er að finna, eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000. Upplýsingum má einnig koma á framfæri í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert