Búast við mikilli umferð

Búast má við þungri umferð á milli klukkan 14 og …
Búast má við þungri umferð á milli klukkan 14 og 15 í dag. mbl.is/Golli

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu biður alla vegfarendur um að fara varlega í dag og flýta sér hægt, ekki síst ökumenn. Búast megi við mikilli umferð á milli 14 og 15. Þetta kemur fram í færslu á Facebook-síðu lögreglunnar. 

„Þetta er nefnt hér sérstaklega vegna leiks Íslands og Nígeríu á HM í Rússlandi í dag, en viðureign þjóðanna hefst kl. 15. Vegna þessa hafa mörg fyrirtæki og stofnanir ákveðið að loka fyrr en ella og því viðbúið að margir verði á heimleið á milli kl. 14 og 15, eða í aðdraganda leiksins,“ segir í færslu lögreglunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert