Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað Gylfa Ólafsson forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða. Í tilkynningu frá velferðarráðuneytinu segir að ákvörðun ráðherra sé í samræmi við niðurstöðu lögskipaðrar nefndar sem metur hæfni umsækjenda um stöður forstjóra heilbrigðisstofnana.
Þrír sóttu um embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða sem velferðarráðuneytið auglýsti laust til umsóknar í apríl síðastliðnum.
Gylfi er heilsuhagfræðingur og lauk B.Ed. gráðu sem grunnskólakennari frá Háskólanum á Akureyri, M.Sc. í hagfræði frá Stokkhólmsháskóla og hefur lagt stund á doktorsnám í heilsuhagfræði við Karolinska í Stokkhólmi frá árinu 2013. Gylfi var aðstoðarmaður Benedikts Jóhannessonar fjármála- og efnahagsráðherra árið 2017.
Í umsögn hæfnisnefndar um Gylfa segir meðal annars að hann hafi nokkuð víðfeðma reynslu úr stjórnkerfinu og þekkingu á heilbrigðismálum í gegnum nám sitt og verkefni. Í umsögninni er einnig vísað til þess að hann hafi mikinn áhuga á að gegna embætti forstjóra við Heilbrigðisstofnun Vestfjarða og hafi kynnt sér vel starfsemi hennar.