Íslendingar mættir á völlinn

Íslendingar eru mættir á völlinn í Volgograd.
Íslendingar eru mættir á völlinn í Volgograd. Eggert Jóhannesson

Fyrstu Íslendingarnir eru mættir á Volgograd Arena þar sem leikur Íslands á móti Nígeríu mun fara fram klukkan 15 í dag. Glampandi sól er í Volgograd og hitinn er í kringum 32 stig.

Fólk er byrjað að streyma inn á leikvanginn og spennan er að magnast segir blaðamaður Morgunblaðsins á staðnum.

Allar áhyggjur af moskítófluguum, bitmý eða lúsmý á vellinum virðast hafa verið óþarfar en ljósmyndari Morgunblaðsins hafði ekki orðið var við neinar flugur þegar fréttastofa hafði samband við hann. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert