„Við sitjum ekki í Rostov!“

Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir og Ómar Ingi Bragason sögðust svekkt eftir …
Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir og Ómar Ingi Bragason sögðust svekkt eftir leikinn gegn Nígeríu en að það væri engu að síður gaman að taka þátt í ævintýri landsliðsins í Rússlandi. Ljósmynd/Aðsend

Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir og Ómar Ingi Bragason eru stödd í Volgograd en þau hafa fylgt landsliðinu eftir í fyrstu tveimur leikjunum og ætla sér nú til Rostov í síðasta leik landsliðsins í riðlakeppninni. Þau segja gaman í Rússlandi þrátt fyrir tap.

Ætla ekki að sitja á næsta leik

„Við sitjum ekki í Rostov!“ sagði Guðrún Jóna í samtali við Magasínið á K100 strax eftir tap leikinn gegn Nígeríu. Hún segir alla hafa setið á leiknum og að hún trúi því að nú þurfi áhorfendur að gefa meiri orku í leikinn og standa, „líkt og við gerðum í til dæmis í Nice er við kepptum á Evrópumótinu í Frakklandi fyrir tveimur árum“. Hún vonast til að allir Íslendingar standi og gefi allt í leikinn gegn Króötum.  

Íslendingar „frægir“ í Rússlandi 

Annars segir hún það hreint ótrúlegt að vera Íslending í Rússlandi í kringum ævintýri landsliðsins. Og þrátt fyrir tapið þá sé gaman að taka þátt. „Þetta er bara ólýsanlegt risapartý,“ segir Guðrún Jóna og hún segir alla vilja taka mynd af sér með íslensku víkingunum eða þá að fólk sé að vilja taka „Húið“ þegar það gengur framhjá. Hún segir þau hafa verið tekin í viðtöl hjá erlendum miðlum og öll athyglin sé jákvæð á svo margan hátt. Hvort sem það hafi verið viðbrögðin frá tollverðinum, nígerísku vinum þeirra sem þau kynntust á flugvellinum eða miðaldra rússneskum húsmæðrum. „Go Iceland“ og „Love your team“ séu ekkert óalgengir frasar á götum úti í Rússlandi. 

Við leyfum nokkrum stemningsmyndum að fylgja með. 

Guðrún Jóna segir það hafa verið lyginni líkast að klæðast …
Guðrún Jóna segir það hafa verið lyginni líkast að klæðast íslenska landsliðsbúningnum á Rauða torginu í Moskvu því margir vildu taka mynd af sér með Íslendingum. Ljósmynd/Aðsend
Hér er Ómar Ingi Bragason, annar frá vinstri, ásamt ferðafélögum …
Hér er Ómar Ingi Bragason, annar frá vinstri, ásamt ferðafélögum og aðdáendum íslenska liðsins sem vildu mynd af sér með Íslendingum. Ljósmynd/Aðsend
Íslenskir ferðafélagar í Moskvu hér með áhugasömum Tyrkja sem vildi …
Íslenskir ferðafélagar í Moskvu hér með áhugasömum Tyrkja sem vildi mynd af sér með víkingunum úr norðri. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert