Dæmdur fyrir hefndarklám

Landsréttur.
Landsréttur. mbl.is/Hanna

Maður var á föstudag dæmdur í 15 mánaða fangelsi í Landsrétti fyrir blygðunarsemisbrot og dreifingu kláms með því að hafa tekið upp myndband af sér og öðrum manni sem sýndi þá í kynmökum, án vitundar brotaþola, og sent myndband og myndir til tveggja aðila, þ.m.t. þáverandi kærustu brotaþola.

Þá var hann sakfelldur fyrir að hafa hótað brotaþola í tölvupósti að birta myndirnar á netinu ef hann borgaði ekki tilsetta fjárhæð og einnig hótað honum ofbeldi í því skyni. Með dóminum mildaði Landsréttur dóm héraðsdóms sem kvað á um 2 ára fangelsi.

Sagðist vilja sýna hvaða mann hann hefði að geyma

Í ákæru var því lýst að því lýst að brotaþoli hafi, á tímabilinu sem brotin voru framin, verið maki og síðar fyrrum maki mannsins. Maðurinn hafi viljað senda myndirnar til þess að sýna fram á að þeir hefðu átt í kynferðissambandi og í skýrslu mannsins fyrir héraðsdómi kvaðst ákærði hafa viljað „sýna kærustu brotaþola hvaða mann brotaþoli hefði að geyma“, eftir að brotaþoli hafði hringt í hann og sagst vilja binda enda á samband þeirra. 

Maðurinn setti jafnframt mynd á Facebook-vegg brotaþola sem sýndi þá í kynferðislegum athöfnum, en eyddi henni út eftir nokkrar sekúndur. 

Brotaþoli manninum fjárhagslega háður

Landsréttur lagði til grundvallar að mennirnir hefðu aðeins átt í kynferðissambandi, en ráðið yrði af gögnum málsins að aðstöðumunur hafi verið á milli þeirra og að brotaþoli hafi verið fjárhagslega háður manninum.

Maðurinn var talinn hafa móðgað og smánað brotaþola svo það varðaði hann refsingu skv. 233. gr. b. almennra hegningarlaga.

Maðurinn hefur áður hlotið refsidóma, m.a. fyrir tvö kynferðisbrot gegn unglingspiltum sem virtir voru honum til refsiþyngingar í niðurstöðu dómsins. Þá var jafnframt litið til þess í forsendum dómsins að hann hefði sýnt sterkan og einbeittan vilja til verksins og að brotaþoli hefði verið honum nákominn. Manninum var einnig gert að greiða brotaþola 1.500.000 krónu í miskabætur með vöxtum 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert