Ekkert að fela í viðskiptum við bankann

Guðmundur Kristjánsson.
Guðmundur Kristjánsson. mbl.is/Styrmir Kári

Brim hefur ekkert að fela í viðskiptum sínum við Landsbankann og fagnar því að afstaða meirihluta hluthafa Vinnslustöðvarinnar til minnihlutans verði gerð opinber á hluthafafundi í Landsbankanum með beiðni um að fara fram á rannsókn á skuldaafskriftum Landsbankans gagnvart félögum tengdum Guðmundi Kristjánssyni, forstjóra Brim. Slíkt gæti varpað ljósi á það hver er orsök áralangra deilna meirihluta og minnihluta hlutafa í Vinnslustöðinni.

Þetta kemur fram í viðbrögðum Brims við tillögu stærsta hluthafa Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum sem samþykkt var á hluthafafundi VSV í morgun um að VSV og Seil ætli að fara fram á rannsókn á skuldaafskriftunum á næsta hluthafafundi Landsbankans.

Grímur Sigurðsson, lögmaður Brims, segir að hluthafafundurinn í morgun hafi verið boðaður að kröfu Brims til þess að taka fyrir tillögu félagsins um að lánveitingar Vinnslustöðvarinnar til tveggja starfsmanna og hluthafa VSV árið 2008 yrðu rannsakaðar. Á föstudaginn hafi Brim hins vegar borist umrædd tillaga að Seil og VSV ætluðu að leggja umrædda tillögu fyrir hluthafafund Landsbankans.

„Í huga Brims er augljóst að þessi tillaga Seilar hefur ekkert með rekstur Vinnslustöðvarinnar að gera og ekkert með hagsmuni hluthafa VSV að gera. Tillagan er greinilega svar meirihluta hluthafa Vinnslustöðvarinnar við lögmætum beiðnum minnihluta hluthafa félagsins um rannsókn á lánveitingum Vinnslustöðvarinnar til hluthafa félagsins og eingöngu sett fram til að drepa þessu máli á dreif,“ segir Grímur.

Báðar tillögurnar voru samþykktar á hluthafafundinum í morgun. Fulltrúar Brims greiddu atkvæði með tillögu um rannsókn á lánveitingum til hluthafa VSV árið 2008 en aðrir hluthafar á móti. Fulltrúar Brims sátu hjá við afgreiðslu tillögu Seilar en aðrir greiddu tillögunni atkvæði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert