Sumahúsainnbrot upplýst

mbl.is/Eggert

Lögreglan á Austurlandi hefur handtekið fjóra einstaklinga vegna innbrota í nokkur sumarhús á héraði í síðustu viku þar sem talsverðu magni af munum var stolið. Náði lögreglan þýfinu til baka og teljast málin upplýst.

Í færslu á Facebook-síðu lögreglunnar kemur fram að meðal þess sem hafi verið stolið séu sjónvörp, verkfæri og aðrir húsmunir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert