Stoppuð upp á Hlemmi?

Þau eru ófá handtökin í búðinni; hér fægir Fjóla silfrið, …
Þau eru ófá handtökin í búðinni; hér fægir Fjóla silfrið, einu sinni sem oftar. Árni Sæberg

Komin á níræðisaldur stendur Fjóla Magnúsdóttir vaktina daglega í Antikhúsinu við Skólavörðustíg og býr sig nú undir að flytja aftur í Þverholtið, þar sem hún opnaði búðina fyrst árið 1988. Hún segir áhuga á antík minni en áður var en engin ástæða sé þó til að örvænta, áhuginn komi aftur enda jafnist ekkert á við heimili með karakter.

Fjóla Magnúsdóttir tekur hlýlega á móti sendinefnd Sunnudagsblaðsins í verslun sinni enda þótt við hefðum getað sótt betur að henni. Hún er nefnilega að jafna sig eftir inflúensu.
„En þú lítur vel út,“ flýtir Árni Sæberg sér að segja. „Já, elsku Árni minn, ég sparslaði í morgun. Vissi að þið væruð að koma.“

Greinilega stutt í húmorinn á þessum bænum.

Fjóla er fædd árið 1934 en fer svo sannarlega fínt með það. Ég þarf raunar að láta segja mér þetta tvisvar, eins og maðurinn forðum. Hún er létt í spori og enn þá léttari í lund. „Sjái maður ekki spaugilegu hliðarnar á tilverunni getur maður alveg eins sleppt því að vera til,“ fullyrðir hún kankvís. „Annars verðurðu að tala svolítið skýrt, elskan; ég er nefnilega búin að týna heyrnartækjunum.“

Hún brosir.

Hver sagan rekur aðra og til að hnykkja á máli sínu grípur Fjóla annað veifið í handlegginn á mér. Maður áttar sig undir eins á því að hér er ósvikin týpa á ferðinni.
Rýmingarsala stendur yfir þessa dagana í Antikhúsinu við Skólavörðustíg enda er Fjóla að flytja starfsemina aftur í Þverholt 7, þar sem hún byrjaði fyrir réttum þrjátíu árum. Af því tilefni vitnar hún í Stein Steinarr:

Ég geng í hring
í kringum allt sem er.
Og innan þessa hrings
er veröld þín.

Opnun Antikhússins átti sér langan aðdraganda. Fjóla ferðaðist mikið til Danmerkur með eiginmanni sínum sáluga, Ólafi Steinari Valdimarssyni, ráðuneytisstjóra í samgönguráðuneytinu, og vissi fátt skemmtilegra en að skoða antík og kíkja á uppboð í þeim ferðum. „Ég lét mig dreyma um að opna mína eigin verslun og var orðin býsna heit 1974. Þá opnaði ég verslun með vinkonu minni Þórunni Magneu Magnúsdóttur leikkonu, en það var ekki grundvöllur fyrir því í lengri tíma, þar sem ég var í fullri vinnu með fjögur börn, svo að ég ákvað að fresta verslunarrekstri. Annars var svo sem ekki mikið fyrir þessum börnum að hafa; þau hafa öll spjarað sig vel; Magnús, Kristín, Steinunn og Ingi Þór, og barnabörnin eru 9. Börn og barnabörn hafa sest að um allan heim. En maður hleypur ekki frá góðri vinnu, ég vann í lögfræðideildinni í Búnaðarbankanum. Þess utan vorum við að byggja á þessum tíma og ég hafði nóg að gera við að skafa og naglhreinsa timbur og raða eftir lengdum.“

Það var svo árið 1988 að Fjóla lét slag standa; sagði upp í bankanum og opnaði Antikhúsið. „Það var auðvitað ekki í lagi; hlýtur að hafa verið ofvirkni eða eitthvað þaðan af verra. Bankinn var yndislegur vinnustaður, við vorum eins og ein stór fjölskylda.“

Antikhúsið er opið frá kl. 12 til 18 virka daga og frá kl. 12 til 16 á laugardögum og Fjóla stendur jafnan sjálf vaktina. Ein og óstudd. Þurfi hún að bregða sér frá þá hefur hún fengið aðstoð. „Meðan ég var og hét var ég stundum fram á rauðanótt hérna í búðinni en það er liðin tíð. Núna nægja mér þessir sex tímar og stundum stelst ég meira að segja til að loka fyrr, til dæmis út af fótboltanum í sumar. Annars er það svo sem ekkert að standa í búðinni; hitt sem fylgir svona rekstri er meira mál. Að kaupa inn, tæma og hreinsa gáma, koma hlutum í viðgerð og svo framvegis. Það hefur verið yndislegt að vera hér á Skólavörðustígnum. Samskiptin við nágranna og aðra verslunareigendur hafa verið mikil og einstök, en við sem höfum verið lengi erum smám saman að hverfa héðan af stígnum. Það er allt opið, hvað tekur við af mér.“

Hún segir áhuga á antík almennt minni nú en áður en engin ástæða sé þó til að örvænta. „Þetta kemur alltaf aftur. Það jafnast nefnilega ekkert á við að hafa karakter á heimilinu.“

Það leggst ljómandi vel í Fjólu að flytja aftur í Þverholtið. „Það hefur mikið breyst á þeim slóðum frá því ég flutti, ekki síst á Hlemmi. Annars hafði ég aldrei ónot af körlunum þar; gaukaði að þeim einum og einum þúsundkalli og þeir hjálpuðu mér að halda undir mublur í staðinn. Það verður rólegra hjá mér í Þverholtinu enda er ekki eins mikil traffík þar og hérna á Skólavörðustígnum. Það er ágætt, þá get ég frekar lokað ef þannig liggur á mér. Hver veit svo nema ég breyti búðinni bara í kaffihús og fari að spá í spil og strekkja dúka; eins og sagði í auglýsingu sem ég sá á Njálsgötunni á stríðsárunum. Eða var það á Grettisgötunni?“

Spurð hvað hún geri ráð fyrir að hafa búðina opna lengi til viðbótar svarar Fjóla: „Ég læt það bara ráðast. Maður þarf að klára þennan pakka. Ætli ég verði svo ekki bara stoppuð upp á Hlemmi!“

Hendur Fjólu hafa unnið verk eða tvö gegnum tíðina.
Hendur Fjólu hafa unnið verk eða tvö gegnum tíðina. Árni Sæberg
Fjóla stendur sjálf vaktina í búðinni og hefur gert í …
Fjóla stendur sjálf vaktina í búðinni og hefur gert í þrjátíu ár. Marga viðskiptavini þekkir hún með nafni. Árni Sæberg
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert