Framkvæmdir á Breiðholtsbraut

Tölvuteikning sem sýnir göngubrúna.
Tölvuteikning sem sýnir göngubrúna.

Á morgun, laugardaginn 21. júlí, hefst uppsteypa brúargólfs nýrrar göngubrúar yfir Breiðholtsbraut milli Seljahverfis og Fellahverfis. Framkvæmdir hefjast klukkan 7:30 og gert er ráð fyrir að þeim ljúki klukkan 14:30 sama dag.

Í frétt frá Vegagerðinni kemur fram að á meðan framkvæmdir standa yfir verður Breiðholtsbraut lokuð milli gatnamóta Seljaskóga og Jaðarsels ásamt því að aðgangur frá Norðurfelli verður lokaður. 

Vegfarendum er bent á hjáleið um Seljabraut og að fylgjast með vegmerkingum.

Hér er kort sem sýnir lokanir og hjáleiðir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert