Annar fundur í kjaradeildu Norðurflugs og Félags íslenskra atvinnuflugmanna hjá ríkisáttasemjara var haldinn í morgun.
Örnólfur Jónsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, segist ekkert geta tjáð sig um hvernig fundurinn gekk. „Þetta er allt á frumstigi, það er það eina sem ég get sagt.“
Næsti fundur hefur verið boðaður í lok mánaðarins.
Þetta er í fyrsta sinn sem kjarasamningur er gerður milli Norðurflugs og FÍA og segir Örnólfur að það taki tíma að búa til nýjan samning.
Fimm flugmenn starfa hjá Norðurflugi.