Jón Pétur nýr aðstoðarmaður menntamálaráðherra

Jón Pétur Zimsen er nýr aðstoðarmaður Lilju Alfreðsdóttur.
Jón Pétur Zimsen er nýr aðstoðarmaður Lilju Alfreðsdóttur. mbl.is/Valgarður Gíslason

Jón Pétur Zimsen, fyrrverandi skólastjóri við Réttarholtsskóla, hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra. Jón Pétur hefur starfað að skólamálum um árabil, nú síðast sem skólastjóri Réttarholtsskóla, en hann lét af störfum þar í vor. Aðalverksvið Jóns Péturs í ráðuneytinu verður á sviði menntamála og stefnumótunar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu.

Jón Pétur lauk B.Ed.-prófi frá Kennaraháskóla Íslands árið 1999 og hefur lagt stund á M.Ed-nám í stjórnun menntastofnana við HÍ. Hann hóf að kenna við Réttarholtsskóla árið 1998 og starfaði síðar einnig sem aðstoðaskólastjóri (2007-2015) og skólastjóri (2015-2018).

Jón Pétur hefur tekið virkan þátt í ýmsum félagasamtökum kennara og skólastjórnenda, s.s. með samninganefnd FG og í stjórn Kennarafélags Reykjavíkur. Hann hefur kennt á menntavísindasviði Háskóla Íslands, komið að endurskoðun námskrár í náttúrufræði og auk þess unnið að fjölbreyttum æskulýðs- og íþróttamálum.

Jón Pétur er annar aðstoðarmaður Lilju, en fyrir hafði hún ráðið Hafþór Eide Hafþórsson í starf aðstoðarmanns.

Í vor var Jón Pétur í viðtali við Morgunblaðið um starfslokin, en hann hefur meðal annars verið gagnrýninn á skólayfirvöld í Reykjavíkurborg og sagði hann skeytingarleysi borgarinnar í garð skólanna meðal annars eiga þátt í því að hann ákvað að stíga til hliðar frá skólamálum í bili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert