Karlmaður er í haldi lögreglu vegna stunguárásar í austurborginni á fimmta tímanum í morgun. Maðurinn sem fyrir árásinni varð var fluttur á spítala eftir að hafa verið stunginn ítrekað í neðri hluta líkamans. Hann er ekki talinn vera í lífshættu.
Að sögn Karls Steinars Valssonar, yfirlögregluþjóns hjá miðlægri rannsóknardeild, hefur ekki verið tekin afstaða um gæsluvarðhald yfir manninum. Þá segir hann yfirheyrslur vera nýhafnar og málið á byrjunarstigi.
Alls komu upp að minnsta kosti 130 mál hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu frá klukkan 19 í gærkvöldi. Þar á meðal voru líkamsárás, slagsmál meðal ungmenna, unglingadrykkja, heimilisofbeldi og akstur undir áhrifum, auk þess sem ekið var á gangandi vegfaranda.