Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, hefur ráðið nýjan aðstoðarmann. Hann heitir Jón Pétursson og er einn af stofnendum Miðflokksins. Fyrrverandi aðstoðarmaður Sigmundar, Jóhannes Þór Skúlason, var í maí ráðinn framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.
Jón er fæddur árið 1971 og lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1991. Hann lauk prófi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík árið 1994 og var stýrimaður til margra ára. Jón er kvæntur og á einn son og býr í Mosfellsbæ.