Tekinn með falsað ökuskírteini

mbl.is/Eggert

Maður framvísaði fölsuðu ökuskírteini þegar lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af honum um helgina. Var maðurinn stöðvaður vegna hraðaksturs. Segir í tilkynningu frá lögreglu að ökuskírteinið hafi litið grunsamlega út við fyrstu sýn, og var sá grunur staðfestur eftir að skilríkjasérfræðingur embættisins hafði athugað það. Hann staðfesti að skilríkið væri grunnfalsað.

Hefur maðurinn því verið kærður bæði fyrir hraðakstur og skjalafals.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert