Snýst í norðanátt á morgun

Líklega rignir víða í dag en styttir upp á morgun.
Líklega rignir víða í dag en styttir upp á morgun. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hægur vindur í dag og víða væta, einkum skúrir vestanlands en fyrir austan er það rigning eða súld. Á morgun snýst í norðlægari átt og léttir til fyrir sunnan, en skýjað norðan heiða. Víða má þó búast við skúrum, sér í lagi síðdegis. 

Fram á sunnudag er útlit fyrir hægan norðlægan vind og vætu víða um land, en ágætislíkur á sólarglennum sunnanlands, segir í hugleiðingum veðurfræðings 

Veðurspáin fyrir næstu daga

Breytileg átt 3-8 m/s og rigning eða súld austanlands með morgninum, en styttir upp suðaustan til í kvöld. Skúrir um landið vestanvert, einkum síðdegis.

Norðlægari á morgun og skýjað fyrir norðan, en bjart með köflum sunnan heiða. Víða skúrir, einkum síðdegis. Hiti 8 til 14 stig.

Á miðvikudag, fimmtudag og föstudag:
Norðlæg eða breytileg átt 3-8 m/s og víða skúrir, en sums staðar þokusúld við N-ströndina. Hiti 8 til 15 stig að deginum, hlýjast syðst. 

Á laugardag:
Hæg suðlæg eða breytileg átt og að mestu skýjað, en þurrt að kalla. Hiti 6 til 13 stig, svalast NA-til. 

Á sunnudag og mánudag:
Útlit fyrir stífa austan- og suðaustanátt með rigningu um landið S- og A-vert, en úrkomulítið fyrir norðan. Hiti 8 til 13 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert