Alvarlega slasaður eftir bílveltu

Einn einstaklingur var í bílnum.
Einn einstaklingur var í bílnum. mbl.is/Eggert

Lögregla og sjúkralið var kallað til á þriðja tímanum í dag eftir bílveltu á Víðinesvegi á Álfsnesi. Einn einstaklingur var í bílnum. Er hann alvarlega slasaður og var fluttur með neyðarflutningi á sjúkrahús samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.

map.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert