Fjölga smáhýsum og félagslegum leiguíbúðum

Ráðhús Reykjavíkur. Borgarráð hefur samþykkt að auka stuðning við Félagsbústaði …
Ráðhús Reykjavíkur. Borgarráð hefur samþykkt að auka stuðning við Félagsbústaði ehf. vegna kaupa og uppbyggingar á félagslegu leiguhúsnæði og fjölga til muna smáhýsum fyrir utangarðsfólk.

Borgarráð hefur samþykkt að auka stuðning við Félagsbústaði ehf. vegna kaupa og uppbyggingar á félagslegu leiguhúsnæði og fjölga til muna smáhýsum fyrir utangarðsfólk, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Mun borgarsjóður veita sérstök fjárframlög til að byggja fleiri leiguíbúðir umfram það sem þegar er gert, bæði af hálfu ríkis og borgar.  Gildir stuðningurinn afturvirkt frá 1. janúar í ár og felur í sér 50-75 milljóna kr. hækkun á framlögum til uppbyggingar félagslegs húsnæðis. 

Gert er ráð fyrir að fjölga leiguíbúðum Félagsbústaða um 100 íbúðir á þessu ári og var ákveðið að biðla til ráðherra um að afnema fjármagnstekjuskatt af lánum sem borgarsjóður veitir Félagsbústöðum ehf.

Einnig var samþykkt í borgarráði að verja 450 milljónum kr. til kaupa á allt að 25 smáhýsum, sem verða síðan tengd við veitukerfi. Verið er að kanna slík smáhýsi og hvaða lóðir gætu hentað fyrir þau. Eru kaup af slíkum smáhýsum hluti af skaðaminnkunarverkefninu „Húsnæði fyrst“ (e. Housing first), sem er liður í aðgerðaáætlun í málefnum utangarðsfólks.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert